Skilmálar
1. Aðilar og þjónusta
Skilmálar þessir gilda um RNT Connectors, þjónustu Reykjanes Tech ehf. („RNT“), sem tengir gervigreindarforrit á borð við Claude og ChatGPT við bókhaldskerfi fyrirtækis („viðskiptavinur“). Þjónustan veitir eingöngu lesaðgang. Hún getur ekki bókað, breytt eða eytt gögnum í bókhaldskerfinu.
Viðskiptavinur samþykkir skilmálana og áskriftina þegar kerfisstjóri hans tengir bókhaldskerfi. Notendur samþykkja skilmálana við innskráningu.
2. Aðgangur og ábyrgð viðskiptavinar
- Kerfisstjóri staðfestir að hann hafi heimild til að tengja bókhaldskerfi fyrirtækisins og veita öðrum aðgang.
- Viðskiptavinur ber ábyrgð á því hverjum er veittur aðgangur og hvaða gögn hver og einn má sjá, og á að fjarlægja notendur sem eiga ekki lengur að hafa aðgang.
- Notendur skrá sig inn með eigin rafrænum skilríkjum og mega ekki deila aðgangi sínum.
- Þjónustan er aðeins í boði fyrir fyrirtæki sem RNT hefur samþykkt.
3. Verð, reikningar og uppsögn
- Mánaðargjald er 4.990 kr. fyrir hvert tengt fyrirtæki með allt að 3 notendur og 1.990 kr. fyrir hvern notanda umfram það. Verð eru án vsk.
- Fyrstu 3 dagarnir eftir að fyrirtæki er tengt eru gjaldfrjálsir. Prufutími gildir einu sinni fyrir hvert fyrirtæki.
- Kerfisstjóri samþykkir áskriftina þegar hann tengir fyrirtækið. Sé henni ekki sagt upp fyrir lok prufutímans er mánaðargjald innheimt eftir á fyrir hvern almanaksmánuð, hlutfallslega fyrir hluta úr mánuði, miðað við fjölda notenda.
- Reikningur er gefinn út á kennitölu fyrirtækisins, eða annars greiðanda sem kerfisstjóri tilgreinir, sem rafrænn reikningur með kröfu í netbanka.
- Kerfisstjóri getur sagt upp hvenær sem er á stjórnsíðunni. Sé sagt upp fyrir lok prufutímans er ekkert innheimt. Eftir það er ekki innheimt fyrir mánuði eftir uppsögn.
- RNT getur breytt verði með 30 daga fyrirvara.
4. Gögn og vinnsla
- Viðskiptavinur er ábyrgðaraðili gagnanna. RNT er vinnsluaðili og vinnur gögnin eingöngu til að veita þjónustuna.
- Bókhaldsgögn eru afrituð úr bókhaldskerfinu í gagnagrunn sem RNT rekur. Gögn hvers viðskiptavinar eru aðskilin og API lykill hans geymdur dulkóðaður.
- Gögnum viðskiptavinar er eytt 30 dögum eftir að síðasti notandi hans hefur verið fjarlægður eða þjónustunni sagt upp.
- Kennitölur einstaklinga í viðskiptamannabókhaldi eru faldar í svörum nema notandi óski sérstaklega eftir upplýsingum um tiltekinn viðskiptavin.
5. Gervigreindarforrit
Þegar notandi spyr gervigreindarforrit eru svör úr bókhaldinu send til þess forrits, t.d. Anthropic (Claude) eða OpenAI (ChatGPT). Um þá vinnslu gilda skilmálar viðkomandi forrits og áskrift notandans þar. Svör gervigreindar geta verið röng eða ófullkomin og koma ekki í stað bókhalds, endurskoðunar eða faglegrar ráðgjafar.
6. Ábyrgð og takmörkun hennar
RNT leitast við að þjónustan sé aðgengileg og gögn rétt samstillt en ábyrgist ekki ótruflaða þjónustu. Gögn geta verið allt að 15 mínútum á eftir bókhaldskerfinu. Ábyrgð RNT er takmörkuð við fjárhæð sem viðskiptavinur hefur greitt síðustu 12 mánuði og nær ekki til óbeins tjóns.
7. Breytingar og lög
RNT getur breytt skilmálum þessum. Verulegar breytingar eru tilkynntar kerfisstjóra með a.m.k. 30 daga fyrirvara. Um skilmálana gilda íslensk lög og ágreiningur fer fyrir íslenska dómstóla.
Spurningar: www.rnt.is/contact